Skilmálar miðasölu – Teboðið
Gildir um kaup á aðgöngumiðum á events.tebodid.is.
Seljandi miða er Teboðið (viðburðarhaldari).
Með kaupum samþykkir kaupandi skilmála þessa.
1. Miðakaup
Miðar eru rafrænir og sendir á það netfang sem skráð er við kaup. Kaupandi ber ábyrgð á að netfang sé rétt skráð.
Framvísa má miða í síma eða útprentuðum við inngang. QR kóði er skannaður við komu og fyrsti skanni gildir.
2. Aldurstakmark (20+)
Viðburðurinn er 20 ára og eldri. Gild skilríki með mynd eru skilyrði fyrir inngöngu.
Ef gestur uppfyllir ekki aldursskilyrði er honum synjað aðgangi án endurgreiðslu. Kaupandi ber ábyrgð á að miði sé keyptur fyrir réttan aðila.
3. Endurgreiðslur og afpantanir
- Endurgreiðsla er möguleg allt að 10 dögum fyrir viðburð
- Eftir það má framselja miðann til annars aðila
Beiðnir sendast á: [setja netfang]
Skannaður miði er ekki endurgreiddur.
4. Forskáning og forsala
Forskráning tryggir ekki miða heldur aðeins aðgang að forsölu. Tölvupóstur með kauphlekk er sendur þegar forsala hefst.
5. Breytingar á viðburði
Viðburðarhaldari getur breytt tímasetningu eða dagskrá ef nauðsyn krefur. Ef breyting telst veruleg getur kaupandi fengið: nýja dagsetningu eða endurgreiðslu innan tilkynnts frests.
6. Niðurfelling viðburðar
Viðburður fellur niður. Ef viðburður fellur niður, þá er eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu eða full endurgreiðsla á miða.
Viðburður færist um dagsetningu. Ef viðburður færist um dagsetningu, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýju dagsetningu. Eigendur miða geta farið fram á endurgreiðslu ef ný dagsetning hentar ekki.
7. Framsal miða
Heimilt er að gefa eða selja miða áfram á eigin ábyrgð. Fyrsti skannaði miði gildir og viðburðarhaldari ber ekki ábyrgð á afritum eða endursölu.
8. Aðgangur og umgengni
Viðburðarhaldari og hurðavarsla geta vísað gesti frá án endurgreiðslu ef: reglur staðar eru brotnar, öryggi gesta er ógnað, eða ólöglegt ástand er til staðar.
9. Myndataka
Á viðburðinum kann að fara fram ljósmynda- og myndbandsupptaka í kynningarskyni.
10. Ábyrgð
Viðburðarhaldari ber ekki ábyrgð á: persónulegum munum, ferðakostnaði, eða kostnaði vegna þess að gestur mætir ekki.
11. Persónuupplýsingar
Netfang er aðeins notað til að senda miðann og upplýsingar um viðburðinn.
12. Óviðráðanleg atvik
Viðburðarhaldari ber ekki ábyrgð á breytingum, frestun eða niðurfellingu viðburðar vegna aðstæðna sem hann ræður ekki við, svo sem veðurs, náttúruhamfara, veikinda lykilstarfsmanna, samgangnatruflana, rafmagnsleysis eða fyrirmæla stjórnvalda.